Stúfur
Baggalútur Lyrics


Það er pínupínulítið, pínulítið sem ég þarf að segja þér
Pínupínulítið, pínulítið sem ég verð að deila með þér
Við komum auga' á agnarsmáan mann

Ótrúlegt við skyldum greina hann

Hann var pínupínulítill, varla mikið meira' en nokkur kílógrömm
Sem var pínulítið skrítið, án þess að ég sé með neina smæðarskömm
Hann fór um langan veg að finna mig
Fann sig knúinn til að minna' á sig

Ég er frábær gaur, fáránlega nettur
Ætti' að vera til á hverju heimili
Frábær gaur, fyrirmyndareintak
Kem og verð með vesen í des

Stúfur, já Stúfur
Hann kemur í kvöld
Takið þið skótauið til
Stúfur, já Stúfur
Hann kemur í kvöld
Ég mæti á svæðið með sjampó og spil

Ég var pínupínulítið hvumsa en ég lagði saman tvo og tvo
Var pínupínulítið hikandi' en ég sagði samt og spurði svo
Hvað ætlar þú að verða litli vin
Ef þú verður stór, eins og við

Frábær gaur, fáránlega nettur
Ætti' að vera til á hverju heimili
Frábær gaur, fyrirmyndareintak
Kem og verð með vesen í des

Brilljant gaur, gríðarlega nettur
Ætti' að vera til á hverju heimili
Toppnæs gaur, tímamótaeintak
Kem og verð með desemberves

Stúfur, já Stúfur
Hann kemur í kvöld
Grísirnir reka upp gól
Stúfur, já Stúfur
Hann kemur í kvöld
Þá gef ég þeim öllum gleðileg jól
Ljúfasti Stúfurinn lendir í kvöld
Komið lausafjármunum í skjól

Stúfur, já Stúfur
Hann kemur í kvöld
Þá verða mömmurnar spól
Stúfur, já Stúfur
Hann kemur í kvöld
Þá gef ég þeim öllum gleðileg jól


Lyrics © O/B/O APRA AMCOS



Written by: Bragi Valdimar Skulason, Gudmundur Kristinn Jonsson, Gudmundur Palsson, Karl Sigurdsson, Gardar Thorsteinn Gudgeirsson, Haraldur Hallgrimsson, Johann Bragi Fjalldal

Lyrics Licensed & Provided by LyricFind
To comment on or correct specific content, highlight it

Genre not found
Artist not found
Album not found
Song not found
Comments from YouTube:

Helgi Thor Gunnarsson

Èg elska þetta lag☺

Tony Wang

love this song so much! any where i can find the english translation of this song?

Arnbjörg Ösp Matthíasdóttir

@isold klara no 13

Jóhanna Ingibjörg Brjánsdóttir

@isold klara we have 13 Santa,s

helena

Isold Klara 13

Eyi's Channel

Maybe surch stúfur song translatete in google

Bryndis Rut Jónsdóttir

isold klara you mean 13

1 More Replies...

Þórunn Eva Ingvarsdóttir

Klikað gott lag ég dírka það i love this song ❤️♥️

Heimir Hannesson

Fyrstur. Frábærir tónleikar hjá ykkur í ár.

Oh No No

Vá þetta er svo flott jóla lag:)

More Comments